# Atlantic Quintet 2026

> Competition in Akureyri, Northeastern Region, Iceland | August 15, 2026

## Overview

**Event Type:** Competition

**Description:** NOGI quintet glímumót á Akureyri – 18 ára og eldri!
Stemmingsmót haldið laugardaginn 15. ágúst í húsakynnum Atlantic.

Mótsgjald: 2.990 kr. – Greitt í gegnum Sportabler - https://www.abler.io/shop/bjjatlantic

**Sá fyrsti sem skráir sig úr hverju liði þarf að búa til liðið við skráningu og sjá um að borga fyrir liðið. Aðrir meðlimir þurfa svo að skrá sig í sama lið.**

**Ef klúbbur mun senda lið í bæði karla og kvenna flokki undir sama nafni er mikilvægt að tilgreina það í nafninu með viðskeyti, dæmi:**

👉 10th planet - Karlar

👉 10th planet - Konur

Það má alveg færa í stílinn og nota til dæmis

👉 10th planet - Einherjar

👉 10th planet - Valkyrjur

🥋 Hvert lið hefur 5 keppendur + Þjálfari (þjálfari má keppa með)

🥋18 ára aldurstakmark

🥋 Þjálfari stillir upp keppnisröð fyrir hverja bardagaröð. Fyrsti keppandi úr liði A mætir fyrsta keppanda úr liði B. Sigurvegarinn er áfram á mottunni og mætir strax næsta keppanda úr hinu liðinu. Þetta heldur áfram þangað til að annað liðið á enga keppendur eftir.

🥋 Það lið sem klárar sína keppendur fyrst tapar og liðið sem enn á keppendur vinnur.

🥋 Ef bæði lið missa síðustu keppendur sína og enginn er eftir (jafntefli etc.) þá er gripið til bráðabana.

🥋 Það er einungis hægt að sigra með **uppgjafartaki**

🥋 Tapp, munnlegt tapp, dómaraákvörðun eða augljós vangeta annars keppandans til að halda áfram telst sem uppgjöf.

🥋 Engin stig, engin advantages eða disadvantages.

🥋 Hver glíma tekur 4 mínútur.

🥋 Ef enginn nær uppgjafartaki innan þessa tímaramma þá er jafntefli og báðir keppendur eru dæmdir úr leik.

🥋 Ef tíminn klárast án uppgjafartaks þá er jafntefli og báðir keppendur eru úr leik.

🥋 Hvert lið hefur heildarþyngdarmörk sem hægt er að deila niður á keppendurna í liðinu.

🥋 Karlar: Heildarþyngd liðs er 420 kg (meðalþyngd 84 kg)

🥋 Konur: Heildarþyngd liðs er 350 kg (meðalþyngd 70 kg)

**Einungis eitt svart belti er leyfilegt innan hvers liðs.**

**Einstök svört belti innan hvers liðs mega ekki vera þyngstu keppendur innan síns liðs.**

Öll uppgjafartök eru leyfð en eftirfarandi er bannað:

❌ Slamm

❌ Skæra takedowns

❌ Hoppa í guard

**Einnig er bannað að grípa í einstaka fingur eða tær, grípa þarf að lágmarki um 3 eða fleiri fingur/tær svo takið sé löglegt.**

🥋 Allar glímur byrja standandi.

🥋 Dómarinn ræður en hefur leyfi til að ráðfæra sig við aðstoðar- og borðdómara ef vafamál kemur upp.

🥋 Dómari má gefa tvær viðvaranir fyrir tafir og biðja keppendur um að byrja aftur standandi eða í annari hlutlausri stellingu ef ekki er tekið tillit til viðvarana.

**Leyfilegt er að nota vegginn.**

Dæmi um tafir:

👎 Halda closed guard og gera ekki tilraun til að vinna úr stöðunni

👎 Hörfa í sífellu

👎 Pulla guard og reyna ekki að sækja úr stöðunni

👎 Hanga í half-guard

🥋 Einn keppandi úr hvoru liði er valinn af þjálfara og sá hinn sami mun taka þátt í 2 mínútna back control lotu.

🥋 Hver byrjar er ákveðið með hlutkesti.

🥋 Annar keppandinn byrjar með back control með króka inni og fær 2 mínútur til að ná uppgjafartaki. Svo fær hinn keppandinn að gera.

🥋 Sá keppandi sem klárar hraðar vinnur.

🥋 Ef hvorugur keppandi klárar á þessum 2 mínútum þá er gripið til dómaraákvörðunar.

🥋 Dómari tekur tillit til eftirfarandi:

👍 Vilji til að sækja

👍 Skemmtanagildi glímustíls

🕘 Húsið opnar kl. 9:00

⚖️ Vigtun til 9:45

📋 Dómarafundur kl. 9:45

🥊 Mótið hefst kl. 10:00

Nánari dagskrá auglýst síðar.

**Status:** Scheduled

## Dates

**Start:** August 15, 2026
## Location

**Venue:** Atlantic

**Location:** Akureyri, Northeastern Region, Iceland


## Pricing

**Price:** 2,900 ISK
## Results

**Entrants:** 4 | **Divisions:** 1 | **Matches:** 4

### Champions (largest divisions)

- Karlar: Frankaher Death Squad
## Links

- Registration: https://smoothcomp.com/en/event/33217

---

**Last Updated:** November 18, 2026

**Data Source:** bjj.space (https://bjj.space/events/atlantic-quintet-2026)
