# Mjölnir Open ungmenna 2020

> Competition in Reykjavík, Capital Region, Iceland | October 24, 2020 – October 25, 2020

## Overview

**Event Type:** Competition

**Description:** Mjölnir Open ungmenna fer fram helgina 24. til 25. október en mótið er fyrir 5 til 17 ára ungmenni. Keppt er í sex aldursflokkum (sjá neðar) án galla (nogi). Þyngdarflokkar eru margir og það kann að vera að einhverjir þyngdarflokkar verða sameinaðir ef skráning í tiltekinn flokk er lítil (færri en 3 keppendur). Þá gætu keppendur mögulega verið færðir um aldurs- og/eða þyngdarflokk ef það er mikill þyngdarmunur.

Laugardaginn 24. október

5-11 ára

**Húsið opnar:**kl. 10:00
**Vigtun:**kl. 10:15
**Reglufundur**10:45
**Mót hefst**11:00

Sunnudagur 25. október

12-17 ára

**Húsið opnar:**kl. 10:00
**Vigtun:**kl. 10:15
**Reglufundur**10:45
**Mót hefst**11:00

Skráning á mótið fer einungis fram á Smoothcomp.com.
Skráningarfrestur til 23. október.

**Mótsgjald:**2.000 kr

**Greiðsla fer fram í móttöku Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en mótið hefst.**

Keppendur eru svo vigtaðir á mótsdag og breytt verður þeim flokkum sem þarf. Fyrir 5-11 ára keppendur má vigta sig síðustu vikuna áður en mót hefst til að spara tíma á keppnisdegi.

— 2013-2015 5-7 ára

— 2011-2012 8-9 ára

— 2009-2010 10-11 ára

—2007-2008 12-13 ára

—2005-2006 14-15 ára

—2003-2004 16-17 ára

—2003-2006 Opinn flokkur

**2013-2015 (glímulengd 2 mínútur) 5-7 ára**

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

Keppt er upp á stig í þessum aldursflokkum og er farið eftir reglum IBJJF (engin advantage stig verða þó gefin)

Óleyfileg brögð:

Engin uppgjafartök eru leyfileg í þessum aldursflokkum.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

**2009-2010 og 2011-2012 (glímulengd 3 mínútur)**

**2006-2006 og 2007-2008 (glímulengd 4 mínútur)**

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

Svæfingarlásar eru leyfðir („naktar“ þ.e. án fatnaðar) en skal miða við að ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Beinir handarlásar eru leyfðir sem og axlarlásar. Ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Óleyfileg brögð:

Úlnliðslásar eru óleyfilegir.

Allir fótalásar eru óleyfilegir, hvort sem um er að ræða beina eða snúandi.

Allir lásar sem fela í sér að snúa upp á háls/hrygg eða setja háls/hrygg í óþægilega stöðu eru óleyfilegir.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing).

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

**2003-2004 (glímulengd 5 mínútur)**

Leyfileg brögð:

Öll svæfingartök ("naktar" þ.e. án fatnaðar).

Allir handarlásar, axlarlásar og úlnliðslásar.

Beinir fótalásar (straight footlocks, e.g. Achilles lock, Estima lock).

Óleyfileg brögð:

Það má ekki kýla, sparka, bíta eða pota í líkamsop.

Það má ekki rífa í hár.

Það má ekki pota í sár eða vísvitandi valda skaða.

Það má ekki reyna að snúa háls í óþægilega stöðu.

að má ekki framkvæma lás sem snýr upp á hryggjaliði.

Það má ekki framkvæma snúandi fótalása.

Það má ekki lyfta manni sem liggur á baki í loftið og skella honum í gólfið.

Ef gripið er í fingur þá skal grípa í að minnsta kosti þrjá fingur sem liggja saman í einu gripi.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.

Stigagjöf er hefðbundin samkvæmt reglum IBJJF.

Athugið að aldursflokkar geta breyst eftir skráningarfjölda keppenda.

ATH: Forráðarmaður verður að skrá barn eða samþykkja skráningu.

**Status:** Scheduled

## Dates

**Start:** October 24, 2020
**End:** October 25, 2020
## Location

**Venue:** Reykjavík

**Location:** Reykjavík, Capital Region, Iceland

## Pricing

**Price:** 2,000 ISK
## Links

- Registration: https://mjolnir.is
- Facebook: https://www.facebook.com/MjolnirMMA/?ref=bookmarks

---

**Last Updated:** November 17, 2026

**Data Source:** bjj.space (https://bjj.space/events/mjolnir-open-ungmenna-2020)