# Unbroken deildin: Dagur 3

> Competition in Reykjavík, Capital Region, Iceland | March 11, 2023

## Overview

**Event Type:** Competition

**Description:** UNBROKEN-DEILDIN byrjar í janúar. Þrír keppnisdagar og keppa allir við alla í sínum flokki yfir dagana þrjá.

Keppt er í deildinni yfir þrjá keppnisdaga; 28. janúar, 18. febrúar og 11. mars. Eftir þessa þrjá keppnisdaga mætast efstu tveir í hverjum flokki í úrslitaglímu í Tjarnarbíó þann 3. júní.

Skráning hefst nú í desember og lýkur mánudaginn 23. janúar kl. 23:00. Aðeins þarf að skrá sig fyrir fyrsta keppnisdag og er ekki hægt að skrá sig í deildina eftir 23. janúar.

Keppt er í nokkrum þyngdarflokkum (sjá neðar) og er vigtað á keppnisdegi á öllum viðburðum. Keppt er í NOGI (án galla). Nái keppandi ekki vigt fær hann ekki að keppa þann dag. Keppandi getur þó keppt á keppnisdögum 2 og 3 nái hann vigt þá daga. Ekki er hægt að breyta um þyngdarflokk þegar skráningu er lokið.

Skráningargjald er 12.900 fyrir deildina en þó verður „early bird“ gjald, 9.900 kr., fyrir þá sem skrá sig og greiða fyrir**8. janúar**. Skráning í deildina fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla þarf að fara í gegnum Sportabler hér: https://www.sportabler.com/shop/mjolnir Skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald. Skráningargjald fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku eftir að deildin hefst.

Í deildinni keppa allir við alla í sínum þyngdarflokki en lágmarks skráning í hvern flokk eru 4 keppendur. Aðeins verður hægt að sigra með uppgjafartaki og fá keppendur 3 stig í deildinni fyrir sigur. Ef hvorugur keppandi nær uppgjafartaki fer glíman í jafntefli og fá báðir keppendur 1 stig.

Þyngdarflokkum verður skipt í byrjendadeild (0-2 ára reynsla) og úrvalsdeild. Ef þátttaka er ekki nægileg (minna en 4 keppendur) gætu flokkar verið sameinaðir. Reglurnar verða þær sömu og á Mjölnir Open en snúandi fótalásar verða bannaðir í byrjendadeild. Nánari útlistun á reglunum koma síðar.

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna

**Laugardagur 28. janúar**

Húsið opnar kl. 9:30

Vigtun kl. 9:30-10:30

Keppni hefst kl. 11:00

**Laugardagur 18. febrúar**

Húsið opnar kl. 9:00

Vigtun kl. 9:30-10:30

Keppni hefst kl. 11:00

**Laugardagur 11. mars**

Húsið opnar kl. 9:00

Vigtun kl. 9:30-10:30

Keppni hefst kl. 11:00

[Keppnisreglur eru hér](https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/unbroken-reglur2023.pdf).

**Status:** Scheduled

## Dates

**Start:** March 11, 2023
## Location

**Venue:** Reykjavík

**Location:** Reykjavík, Capital Region, Iceland


## Results

**Entrants:** 16 | **Divisions:** 5 | **Matches:** 20

### Champions (largest divisions)

- Karlar / +99 kg Úrvalsdeild: Eggert Djaffer Si Said (Mjölnir)
- Konur / -60 kg Byrjendadeild: Harpa Hauks (Mjölnir)
- Konur / -70 kg Byrjendadeild: Kolfinna Þöll Þórðardóttir (Mjölnir)
- Karlar / +99 kg Byrjendadeild: Birgir Steinn Ellingsen (Brimir BJJ)
- Konur / -60 kg Úrvalsdeild: Ingibjörg Birna Ársælsdóttir (Mjölnir)

### Team Medals

| Team | Gold | Silver | Bronze |
|---|---|---|---|
| Mjölnir | 4 | 4 | 2 |
| Brimir BJJ | 1 | 0 | 0 |
| RVK MMA | 0 | 1 | 0 |
| VBC | 0 | 0 | 2 |
## Links

- Facebook: https://www.facebook.com/MjolnirMMA/

---

**Last Updated:** November 17, 2026

**Data Source:** bjj.space (https://bjj.space/events/unbroken-deildin-dagur-3)
