# Hólmganga ungmenna nogi 2022

> Competition in Reykjavík, Capital Region, Iceland | April 02, 2022

## Overview

**Event Type:** Competition

**Description:** Hólmgangan er vanalega innanfélagsmót en að þessu sinni bjóðum við öllum félögum landsins að taka þátt. Mótið verður laugardaginn 2. apríl kl. 11 og stendur fram eftir degi. Keppt verður í nogi (án galla).

Skráningu lýkur kl. 23 fimmtudaginn 31. mars og er ekki hægt að skrá sig þegar skráningarfresti er lokið. Skráningargjald er 1.000 kr.

Skráning á mótið fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa að skrá sig í gegnum Smoothcomp en skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.

Það verður engin formleg vigtun og treystum við því að keppendur verði skráðir í réttan flokk. Flokkunum verður raðað þannig að allir fá nokkrar glímur enda bara um æfingamót að ræða.

Skráning á mótið fer fram á Smoothcomp.com.
Skráningarfrestur rennur út 31. mars.

**Mótsgjald:**1.000 kr

**Greiðsla fer fram í móttöku Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en mótið hefst.**

—2015-2017 5-7 ára

—2013-2014 8-9 ára

—2011-2012 10-11 ára

—2009-2010 12-13 ára

—2007-2008 14-15 ára

—2005-2006 16-17 ára

**2015-2017 (glímulengd 2 mínútur) 5-7 ára**

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

Keppt er upp á stig í þessum aldursflokkum og er farið eftir reglum IBJJF (engin advantage stig verða þó gefin)

Óleyfileg brögð:

Engin uppgjafartök eru leyfileg í þessum aldursflokkum.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

**2011-2012 og 2013-2014 (glímulengd 3 mínútur)**

**2007-2008 og 2009-2010 (glímulengd 4 mínútur)**

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

**Leyfileg brögð:**

Svæfingarlásar eru leyfðir („naktir“ þ.e. án fatnaðar) en skal miða við að ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Beinir handarlásar eru leyfðir sem og axlarlásar. Ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

**Óleyfileg brögð:**

Úlnliðslásar eru óleyfilegir.

Allir fótalásar eru óleyfilegir, hvort sem um er að ræða beina eða snúandi.

Allir lásar sem fela í sér að snúa upp á háls/hrygg eða setja háls/hrygg í óþægilega stöðu eru óleyfilegir.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing).

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

**2005-2006 (glímulengd 5 mínútur)**

Leyfileg brögð:

Öll svæfingartök ("naktir" þ.e. án fatnaðar).

Allir handarlásar, axlarlásar og úlnliðslásar.

Beinir fótalásar (straight footlocks, e.g. Achilles lock, Estima lock).

Óleyfileg brögð:

Það má ekki kýla, sparka, bíta eða pota í líkamsop.

Það má ekki rífa í hár.

Það má ekki pota í sár eða vísvitandi valda skaða.

Það má ekki reyna að snúa háls í óþægilega stöðu.

að má ekki framkvæma lás sem snýr upp á hryggjaliði.

Það má ekki framkvæma snúandi fótalása.

Það má ekki lyfta manni sem liggur á baki í loftið og skella honum í gólfið.

Ef gripið er í fingur þá skal grípa í að minnsta kosti þrjá fingur sem liggja saman í einu gripi.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.

Stigagjöf er hefðbundin samkvæmt reglum IBJJF.

Athugið að aldursflokkar geta breyst eftir skráningarfjölda keppenda.

**Status:** Scheduled

## Dates

**Start:** April 02, 2022
## Location

**Venue:** Reykjavík

**Location:** Reykjavík, Capital Region, Iceland

## Pricing

**Price:** 1000 ISK
## Links

- Registration: https://mjolnir.is
- Source: https://smoothcomp.com/en/event/7036
- Facebook: https://www.facebook.com/MjolnirMMA/?ref=bookmarks
## Tags

No-Gi

---

**Last Updated:** March 30, 2026

**Data Source:** BJJ.Space (https://bjj.space/events/holmganga-ungmenna-nogi-2022)