# Íslandsmeistaramót NoGi 2026

> Competition in Reykjavík, Capital Region, Iceland | May 30, 2026

## Overview

**Event Type:** Competition

**Description:** Íslandsmeistaramót Nogi 2026 verður haldið laugardaginn 30. maí í Ármannsheimilinu.

 Húsið opnar kl. 8 með vigtun keppenda í barna og unglingaflokki, mótið sjálft hefst kl. 9.Keppt verður á fjórum völlum að þessu sinni. Mótið er ætlað fyrir keppendur á öllum aldri og skiptist það niður í þyngdar- og aldursflokka hjá börnum og þyngdar- og reynsluflokka hjá fullorðnum.

Skráning á mótið fer fram á bji.smoothcomp.com.Skráningarfrestur til og með 26. maí.

**Mótsgjald fyrir börn og unglinga (4-17ára):** 3.500 kr.

**Mótsgjald fyrir fullorðna (18+)**: 7.500 kr.

Til að ljúka skráningu þarf að millifæra mótsgjaldiðinn á reikning BJÍ:
Reikningsnúmer: 0301-26-005642
Kennitala: 431008-2460

Setið nafn keppanda í skýringu.

**!!ATHUGIÐ! MJÖG mikilvægt er að senda kvittun úr netbankanum á bji@bji.is með fullu nafni keppenda sem greitt var fyrir!!!**

Húsið opnar kl. 8:00

Vigtun kl. 8:15

Reglufundur kl. 8:45

Barna- og unglingamót hefst kl. 9:00

Fullorðins flokkar ca kl. 11:00

Gjald fyrir áhorfendur verður innheimt á staðnum: 1.000 kr.

Börnum verður skipt niður í þyngdar og aldursflokka með sanngirnis sjónarmið að leiðarljósi í samstarfi við þjálfara. Keppt verður með round robin fyrirkomulagi en þá fá allir keppndur í hverjum flokk að keppa við alla, sem tryggir að minnsta kosti 2 glímur fyrir hvern keppanda.

— 4–5 ára— 6–7 ára— 8–9 ára—10–11 ára—12–13 ára—14–15 ára—16–17 ára

Athugið að aldursflokkar geta breyst eftir skráningarfjölda keppenda.

Óleyfileg brögð eftir aldursflokkum og tímalengd glíma má sjá hér [http://www.bji.is/wp-content/uploads/2018/10/BJI_IMUNG_reglur_181010.pdf](http://www.bji.is/wp-content/uploads/2018/10/BJI_IMUNG_reglur_181010.pdf)

**ATH: Forráðarmaður verður að skrá barn eða samþykkja skráningu.**

Reiknað er með að fullorðir flokkarnir byrji um kl. 11. Engin reglufundur verður fyrir keppendur og er ætlast til að þjálfarar og keppendur kynni sér reglur sjálfir fyrir mót. Keppt verður eftir reglum BJÍ í nogi og er hægt að kynna sér þær hér að neðan. Ætlast er að keppendur mæti í vigtun að minnsta kosti 60 mínútum fyrir fyrstu glímu í sínum flokk.

Í ár er mótinu skipt upp í þrjá getuflokka: Byrjenda flokkur (hvít belti), framhalds flokkur (blá belti) og svo úrvals flokkur (fjólublá, brún og svört belti)

Að venju verða aðeins tveir opnir flokkar: opinn flokkur kvenna og opinn flokkur karla. Allir geta skráð sig í opnu flokkana, óháð beltalit og þyngd, en þeir sem keppa í úrvalsflokk og sigurvegarar hvers flokk eiga forgang í flokkana.

Hér er hlekkur á reglur fyrir mótið:https://www.bji.is/keppnisreglur/reglutoflur-no-gi/

–60 kg–65 kg–70 kg–76 kg–83 kg–91 kg–100 kg+100 kg

– 50 kg– 55 kg– 60 kg– 65 kg– 70 kg– 75 kg+75 kg

Athygli er vakin á því að mótshaldarar gefa sér frelsi til að sameina flokka bæði eftir þyngdum og litum, ef flokkar eru of fámennir. Alltaf verður reynt að sameina flokka á sem sanngjarnastan hátt.

**Status:** Scheduled

## Dates

**Start:** May 30, 2026
## Location

**Venue:** Ármann

**Location:** Reykjavík, Capital Region, Iceland


## Links

- Registration: https://smoothcomp.com/en/event/31666
- Source: https://smoothcomp.com/en/event/31666
- Instagram: https://www.instagram.com/bjjiceland/
- Facebook: https://www.facebook.com/BJJ.Samband.Islands/
## Tags

No-Gi

---

**Last Updated:** April 29, 2026

**Data Source:** BJJ.Space (https://bjj.space/events/islandsmeistaramot-nogi-2026)
