Birgir Steinn Ellingsen
Brimir BJJ · Karlar / +99 kg BYRJENDADEILD
Brimir BJJ · Karlar / +99 kg BYRJENDADEILD
VBC · Karlar / +99 kg ÚRVALSDEILD
Mjölnir · Konur / -60 kg BYRJENDADEILD
Mjölnir · Konur / -60 kg ÚRVALSDEILD
Mjölnir · Konur / -70 kg BYRJENDADEILD
Sleipnir · Konur / +70 kg ÚRVALSDEILD
Mjölnir
VBC
Sleipnir
Counted from finished brackets — not the organiser's official table.
UNBROKEN-DEILDIN byrjar í janúar. Þrír keppnisdagar og keppa allir við alla í sínum flokki yfir dagana þrjá.
Keppt er í deildinni yfir þrjá keppnisdaga; 28. janúar, 18. febrúar og 11. mars. Eftir þessa þrjá keppnisdaga mætast efstu tveir í hverjum flokki í úrslitaglímu í Tjarnarbíó þann 3. júní.
Skráning hefst nú í desember og lýkur mánudaginn 23. janúar kl. 23:00. Aðeins þarf að skrá sig fyrir fyrsta keppnisdag og er ekki hægt að skrá sig í deildina eftir 23. janúar.
Keppt er í nokkrum þyngdarflokkum (sjá neðar) og er vigtað á keppnisdegi á öllum viðburðum. Keppt er í NOGI (án galla). Nái keppandi ekki vigt fær hann ekki að keppa þann dag. Keppandi getur þó keppt á keppnisdögum 2 og 3 nái hann vigt þá daga. Ekki er hægt að breyta um þyngdarflokk þegar skráningu er lokið.
Skráningargjald er 12.900 fyrir deildina en þó verður „early bird“ gjald, 9.900 kr., fyrir þá sem skrá sig og greiða fyrir8. janúar. Skráning í deildina fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla þarf að fara í gegnum Sportabler hér: https://www.sportabler.com/shop/mjolnir Skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald. Skráningargjald fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku eftir að deildin hefst.
Í deildinni keppa allir við alla í sínum þyngdarflokki en lágmarks skráning í hvern flokk eru 4 keppendur. Aðeins verður hægt að sigra með uppgjafartaki og fá keppendur 3 stig í deildinni fyrir sigur. Ef hvorugur keppandi nær uppgjafartaki fer glíman í jafntefli og fá báðir keppendur 1 stig.
Þyngdarflokkum verður skipt í byrjendadeild (0-2 ára reynsla) og úrvalsdeild. Ef þátttaka er ekki nægileg (minna en 4 keppendur) gætu flokkar verið sameinaðir. Reglurnar verða þær sömu og á Mjölnir Open en snúandi fótalásar verða bannaðir í byrjendadeild. Nánari útlistun á reglunum koma síðar.
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna
Laugardagur 28. janúar
Húsið opnar kl. 9:30
Vigtun kl. 9:30-10:30
Keppni hefst kl. 11:00
Laugardagur 18. febrúar
Húsið opnar kl. 9:00
Vigtun kl. 9:30-10:30
Keppni hefst kl. 11:00
Laugardagur 11. mars
Húsið opnar kl. 9:00
Vigtun kl. 9:30-10:30
Keppni hefst kl. 11:00
Flugvallarvegur 3-3a, Reykjavík 101
Engjavegur 7, Reykjavík 104
Auðbrekka 23, Kópavogur 200
Smiðjuvegur 28, Kópavogur 200
Viðarhöfði 2, Reykjavík 110
Suðurhella 5, Hafnarfjörður 221